26.08.2015

Stefán Broddi ráð­inn for­stöðu­maður greining­ar­deild­ar Arion banka

Stefán Broddi Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður greiningardeildar Arion banka. Stefán hefur starfað hjá bankanum frá ársbyrjun 2012 sem sérfræðingur í greiningardeild þar sem hann hefur haft umsjón með fyrirtækjagreiningu.

Stefán hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum en á árunum 2008 - 2011 starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka í markaðsviðskiptum og sem forstöðumaður eigin viðskipta á Íslandi. Á árunum 2006 - 2008 var Stefán fjárfestingastjóri hjá Exista og frá árinu 2001 til ársins 2006 starfaði hann í Íslandsbanka sem sérfræðingur í greiningu og markaðsviðskiptum. Á árunum 1998 – 2001 var Stefán blaðamaður á Viðskiptablaðinu.

Stefán Broddi er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Eiginkona hans er Þuríður Anna Guðnadóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, og saman eiga þau þrjá syni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira