28.09.2015

Sýning á verk­um Georgs Guðna

Laugardaginn 12. september síðastliðinn var opnuð sýning á verkum listmálarans Georgs Guðna í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Á opnuninni hélt myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi, fyrirlestur um verk Georgs Guðna, sem hann nefndi Myndir af engu. Fjöldi fólks kom í bankann af þessu tilefni og var gerður góður rómur að fyrirlestrinum.

Georg Guðni (1961-2011) er einn áhrifamesti listamaður þjóðarinnar en með málverkum sínum af íslenskri náttúru er hann talinn hafa endurvakið landslagið í íslenskri myndlist. Á sýningunni er að finna valin verk frá árunum 1985-2009, þar á meðal verk sem hafa ekki verið sýnd áður hér á landi. Sýningin stendur til 11. desember næstkomandi.

Hér má horfa á fyrirlesturinn í heild sinni:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira