25.01.2025

Þú spil­ar fyrir lands­lið­ið vegna þess að þú brenn­ur fyrir íþrótt­inni

Viðtal við Janus Daða Smárason, handboltamann

Heimsmeistaramót karla í handknattleik fer nú fram í Króatíu, Danmörku og Noregi og hefur íslenska landsliðið átt frábæra byrjun, unnið alla leikina í riðlinum og strákarnir okkar því komnir í milliriðil með fullt hús stiga. Arion banki er sem fyrr samstarfsaðili og bakhjarl landsliðsins og við heyrðum stuttlega í Janusi Daða Smárasyni, bakverðinum knáa.

Sæll og blessaður, Janus! Hvernig finnst þér að vera í sviðsljósinu og fá mikla athygli í kringum stórmót og leiki? Er það gaman eða stressandi?

„Það skiptir mig miklu máli hvað þjóðin hefur mikinn áhuga á handboltanum. Það sýnir hvað fólki þykir vænt um þessa íþrótt. Maður finnur það alveg. Það er einfaldlega allt öðruvísi að spila með landsliði en félagsliði.“

Já, hvernig kemur sá munur fram?

„Kalt mat: Félagsliðið, það er bara vinnan þín. Sem keppnismaður viltu auðvitað berjast um titla og þess háttar en um leið er það vinnan þín og hversdagslegur veruleiki. Öðru gegnir um landsliðið: Þar er engin skylda að spila. Þú gerir það bara vegna þess að þú brennur fyrir því.“

Hvernig undirbýrðu þig fyrir landsleikina?

„Ég horfi á vídjó og greini mótherjann. Við þurfum að sjálfsögðu að vera með á hreinu hvernig við ætlum að spila. Ég er hins vegar ekki með einhverja sérstaka rútínu á leikdegi. Ég þarf ekki að borða neitt sérstakt eða fara í langan göngutúr, ekkert þannig. Ég hlusta mikið á tónlist reyndar. Það getur verið hvað sem er og er kannski það eina sem ég geri alltaf.“

Verðurðu stressaður fyrir leikina?

„Ég get orðið stressaður ef ég er illa undirbúinn. Annars er þetta frekar bara spenna og eftirvænting. Stundum verð ég dálítið óþolinmóður því að það getur verið erfitt að bíða allan liðlangan daginn eftir leiknum. Maður þarf að finna sér eitthvað að gera en um leið er erfitt að einbeita sér að einhverju öðru en leiknum framundan.“

En ertu hjátrúarfullur? Er eitthvað sérstakt sem þú gerir alltaf fyrir leiki?

„Með landsliðinu fer ég alltaf með Bjarka út í höll og drep með honum tímann svo að við séum ekki búnir að klæða okkur í keppnisgallann 90 mínútum fyrir leik!“

Takk kærlega fyrir spjallið, Janus. Við biðjum að heilsa Bjarka og öllum hinum leikmönnunum – og segjum bara áframhaldandi gott gengi á mótinu!

„Takk fyrir það!“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira