08.06.2015

Tíma­bundin und­an­þága á skyldum viðskipta­vaka á eftir­markaði

Arion banki hefur ákveðið að veita viðskiptavaka á sértryggðum skuldabréfum bankans tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði.

Þann 8. júní 2015 er MP banka sem er viðskiptavaki sértryggðra skuldabréfa heimilt að leggja ekki fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX.

Ákvörðunin er tekin til að vernda jafnræði fjárfesta. Áætlað er að opnað verði aftur fyrir viðskipti kl. 14 í dag í kjölfar blaðamannafundar forsætisráðherra og fjármálaráðherra þar sem kynnt verður áætlun um afnám fjármagnshafta.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira