08.10.2015

Um­fram­eftir­spurn í út­boði Arion banka á hlut­um í Sím­anum

Bankinn selur 21% í Símanum á meðalgenginu 3,33 kr./hlut

  • Söluandvirði nemur 6,7 milljörðum króna.

  • Tæplega 5.000 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf í Símanum.

  • Heildareftirspurn var um 33 milljarðar.

  • Markaðsvirði hlutafjár Símans er um 32 milljarðar króna.

Vel heppnuðu almennu útboði á 18-21% eignarhlut Arion banka í Símanum hf. lauk í gær, miðvikudaginn 7. október klukkan 16.00. Tæplega 5.000 fjárfestar óskuðu eftir kaupum á hlutabréfum í Símanum fyrir samtals um 33 milljarða króna og er niðurstaða bankans að selja um 4.600 þeirra samtals 21% hlut fyrir um 6,7 milljarða króna. Vegið meðalgengi í þeim viðskiptum er 3,33 krónur á hlut og er markaðsvirði alls hlutafjár í Símanum um 32 milljarðar króna miðað við þá niðurstöðu útboðsins.

Í ljósi mikillar eftirspurnar hefur Arion banki ákveðið að fullnýta heimild sína til að stækka útboðið og selja 2.026,5 milljónir hluta sem eru 21% hlutafjár í félaginu. Nú liggur fyrir að 5% hlutafjár verða seld á genginu 3,1 krónur á hlut í tilboðsbók A (þar sem mögulegt verðbil var 2,7-3,1) og 16% seld á genginu 3,4 krónur á hlut í tilboðsbók B (þar sem lágmarksgengi var 2,7). Fjárfestar í tilboðsbók A fá úthlutað að hámarki um 340 þúsund krónum að kaupverði og verða lægri áskriftir ekki skertar. Áskriftir sem bárust á verði yfir genginu 3,4 krónur á hlut í tilboðsbók B verða óskertar en áskriftir sem bárust á því gengi verða skornar niður hlutfallslega og nemur heildarskerðing þeirra um 300 milljónum króna.

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Nasdaq Iceland hefur staðfest að hlutir í Símanum hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 13. október næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og hefur einnig, ásamt fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance, umsjón með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöllina. Áætlað er að fimmtudaginn 15. október næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Símanum á Aðalmarkaði.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er ánægjulegt fyrir Arion banka að sjá þessa góðu niðurstöðu í útboðinu. Mikil eftirspurn eftir hlutabréfum í félaginu og fjöldi fjárfesta sem tók þátt í útboðinu ber vott um traust og væntingar til félagsins. Við deilum því trausti með nýjum hluthöfum í Símanum en Arion banki á nú tæplega 7% hlut í félaginu eftir að hafa selt 21% í útboðinu. Skráning Símans á markað er sú þriðja á árinu sem Arion banki hefur umsjón með og við lítum á skráningu Símans á markað sem enn eitt mikilvæga skrefið í upp¬byggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi.“

Orri Hauksson, forstjóri Símans:
„Síminn hefur fylgt landsmönnum í rúma öld. Það er því afar ánægjulegt að sjá hversu margir vilja fylgja honum fram veginn sem hluthafar. Skráning Símans á Aðalmarkað Kauphallarinnar er mikilvægt skref fyrir félagið, starfsfólk og hluthafa, en ekki síður viðskiptavini sem eiga sinn þátt í því hvernig fyrirtækið þróast á hörðum samkeppnismarkaði. Við hjá Símanum hlökkum til að takast á við framtíðina í skráðu félagi og bjóðum nýja hluthafa hjartanlega velkomna í hópinn.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira