14.11.2016

Út­boð Skelj­ungs í nóv­em­ber

  • Boðinn verður 23,5-31,5% hlutur í almennu útboði 28.-30. nóvember

  • Stærð útboðsins nemur að lágmarki 3,0 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 6,1 krónur á hlut

  • Stjórn Skeljungs hefur ákveðið að óska eftir því að hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland

  • Skeljungur væntir þess að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði geti hafist 9. desember

23,5-31,5% hlutur boðinn til sölu í almennu útboði

Áður en kemur að skráningu Skeljungs mun fara fram almennt útboð á hlutabréfum í félaginu dagana 28.-30. nóvember þar sem SF IV slhf. býður til sölu 23,5% eignarhlut í félaginu. Arion banki hf. og SÍA II slhf. áskilja sér rétt til að stækka útboðið um allt að 8%.

Miðað við lágmarksverð útboðsins nemur heildarstærð þess 3,0-4,0 milljörðum króna og svarar það til 12,8-14,5 milljarða króna markaðsvirðis alls hlutafjár í Skeljungi.

Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 6,1-6,9 krónur á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónum króna. Þar verður lágmarksverð 6,1 króna á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint, en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi í tilboðsbók A.

Um Skeljung

Skeljungur er olíufélag sem hefur það að meginmarkmiði að þjónusta orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja hratt og örugglega í sátt við umhverfi sitt. Félagið samanstendur af tveimur rótgrónum rekstrarfélögum, Skeljungi hf. á Íslandi og dótturfélaginu P/F Magn í Færeyjum. Skeljungur selur eldsneyti og olíur til einstaklinga og fyrirtækja í sjávarútvegi, landbúnaði, landflutningum, flugi og til verktaka. Fyrirtækið selur einnig áburð og ýmsar aðrar efnavörur. Vörur og þjónusta fyrirtækisins eru seld undir vörumerkjunum Skeljungur, Orkan, Orkan X og Magn.

Skráning áskrifta

Tekið verður við áskriftum frá og með 28. nóvember, klukkan 12:00, til og með 30 nóvember, klukkan 16:00. Áskriftir skal skrá rafrænt á sérstöku áskriftarformi (áskriftarvef) sem, við upphaf útboðs, verður aðgengilegur í gegnum vef Arion banka, www.arionbanki.is.

Upplýsingar um félagið

Skeljungur hefur birt lýsingu, dagsetta 14. nóvember 2016, þar sem nálgast má helstu upplýsingar um félagið, hlutabréf þess og fyrirhugað útboð. Lýsingin er aðgengileg á vef félagsins, http://www.skeljungur.is/um-skeljung/fjarfestar/, en þar verður einnig birt fjárfestakynning vegna útboðsins.

Skráningarlýsing Skeljungs
Samantekt á íslensku
Fjárfestakynning

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira