18.11.2015

Víð­tæk sam­staða um að draga úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda

Arion banki tilheyrir nú hópi 103 fyrirtækja sem skrifað hafa undir yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum sem Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð, og Reykjavíkurborg standa að.

Aðilar að yfirlýsingunni eru sammála því að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að setja sér markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs meðal annars með því að nota minna af óendurvinnanlegu hráefni og umbúðum, endurvinna og endurnýta. Þá hafa fyrirtækin skuldbundið sig til að setja sér mælanleg markmið og gefa reglulega út upplýsingar um stöðu fyrrnefndra þátta. Auk þess að taka þátt í að leiða verkefnið mun Reykjavíkurborg taka þátt í aðgerðum til að draga úr mengun í borginni.

Verkefnið er hugsað sem hvatning fyrir rekstraraðila um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á eigin forsendum og sýna þar með frumkvæði og ábyrgð gagnvart umhverfinu og samfélaginu. Þátttakendum mun einnig bjóðast fræðsla varðandi loftslagsmál, bæði hvernig nálgast á viðfangsefnið með praktískum hætti og reynslusögur annarra fyrirtækja af því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri.

Fyrirtækin sem skrifuðu undir yfirlýsinguna eru af ýmsum toga; lítil og stór, framleiðslufyrirtæki, fyrirtæki í iðnaði og þjónustu sem og háskólar og sum þeirra menga meira en önnur. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna er rúmlega 43 þúsund og því til viðbótar mætti telja rúmlega 30 þúsund nemendur í þeim skólum sem tengjast menntastofnunum sem taka þátt. Þjónusta þessara fyrirtækja og stofnana tengist öllum landsmönnum með einum eða öðrum hætti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira