18.10.2016

Ylja, Myrra Rós og Rósa Guð­rún spila á sjöttu tón­leik­um KEX og KÍTÓN

Sjöttu tónleikarnir í tónleikaröðinni KEX+KÍTÓN í samstarfi við Arion banka verða haldnir í Gym & Tonic á KEX Hostel 19. október næstkomandi þar sem fram koma hljómsveitin Ylja ásamt tónlistarkonunum Myrru Rós og Rósu Guðrúnu.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 20.00 og er aðgangseyrir kr. 1.500 (selt inn við hurð). Nánari upplýsingar um tónleikana má sjá hér.

Ylja er fimm manna indie/folk hljómsveit upprunalega stofnuð sem dúet söngvaranna Gígju Skjaldardóttur og Bjarteyjar Sveinsdóttur. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 2012 og vakti strax umtalsverða athygli fyrir draumkenndar laglínur, hljómfagrar raddir og fallegan gítarsamhljóm. Þeir Magnús Örn Magnússon og Örn Eldjárn bættust við snemma á árinu 2014 og um haustið gekk Ingibjörg Elsa Turchi til liðs við sveitina. Í þessari mynd gaf Ylja út sína aðra plötu sama ár, Commotion, sem er ívið rafrænni og býr við mun stærri hljóðheim en sú fyrri. Bjartey og Gígja halda þó alltaf tryggð við samhljóm radda sinna og leitast við að koma aðdáendum Ylju á óvart. Ylja hefur þrívegis verið tilnefnd til ÍSTÓN (íslensku tónlistarverðlaunanna) fyrir söng sinn og flutning.

Rósa Guðrún er söngkona og saxófónleikari sem hefur komið fram með ýmsum tónlistarmönnum síðustu árin. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2014 og er þessa dagana að vinna að nýrri plötu. Tónlistin er margþætt, allt frá R&B og reggae yfir í dramapopp og verður hún frumflutt á tónleikum KÍTON á KEX. Með henni á sviðinu verður rjóminn af ungu tónlistarfólki sem saman skipar 7 manna band. Ásamt því að semja og flytja sína eigin tónlist hefur Rósa spilað með hljómsveitum og tónlistarmönnum á borð við Jónasi Sig & Ritvélum framtíðarinnar og Mugison.

Myrra Rós er tónlistarkona sem á rætur að rekja til Hafnarfjarðar. Hún hefur gefið út tvær plötur undir sínu nafni á vegum þýska útgáfufyrirtækisins Beste Unterhaltung en þær nefnast Kveldúlfur (2012) og One Amongst Others (2015) en sú plata komst til að mynda á lista yfir bestu plötur ársins 2015 hjá Kraumi Tónlistarsjóði.

Myrra ásamt hljómsveit mun flytja lög af plötunni One Amongst Others þetta kvöld en tónlist hennar má lýsa sem draumkenndu, lágstemmdu þjóðlagapoppi, sérsniðið að dimmum haustkvöldum.

Um KÍTÓN

KÍTÓN stendur fyrir konur í tónlist og er tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist. Þeim tilgangi er náð með auknum sýnileika, viðburðum og stöðugu samtali við tónlistarkonur á Íslandi. Samstarf KÍTÓN við KEX Hostel og Arion banka rennir enn fremur stoðum undir það góða starf sem KÍTÓN er að vinna.

Með tilstuðlan KÍTÓN er umræðan um stöðu kvenkyns laga- og textahöfunda jafnt sem flytjenda orðin fyrirferðameiri en hún hefur verið undanfarna áratugi. Félagið fer þvert á allar tónlistarstefnur, strauma, bakgrunn, menntun og jafnvel má sjá konur í félaginu sem starfa við tónlist sem umboðsmenn eða hafa atbeini eða starfa af tónlistargeiranum. Félagið fer ört stækkandi og eru nú um 246 félagskonur skráðar.

Myndbönd frá fyrri tónleikum úr tónleikaröðinni:

Trílógía og Cyber
Sísý Ey og Milkywhale
Soffía Björg og Boogie Trouble
Glowie og Lily The Kid

Myndband KÍTON fyrir vitundarvakningu um Sterkar Stelpur:

Myndband KÍTON

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira