Premium World
Premium Word er fyrir þau sem vilja ferðast með stæl en á sama tíma njóta betri fríðinda.

Premium Word er fyrir þau sem vilja ferðast með stæl en á sama tíma njóta betri fríðinda.

Kortið veitir betri fríðindi, víðtækari ferðatryggingar, rýmri úttektarheimildir og hentar einkar vel þeim sem eru mikið á ferð og flugi.
Korthafar safna Vildarpunktum Icelandair af allri verslun og hafa aðgang að Saga Lounge á Keflavíkurflugvelli þegar flogið er með Icelandair.
| Trygging | Upphæð |
|---|---|
| Dánarbætur v/ slyss | 12.000.000 kr. |
| Örorkubætur v/ slyss | 12.000.000 kr. |
| Sjúkratrygging | 20.000.000 kr. |
| Endurgreiðsla ferðar | 440.000 kr. |
| Sjúkradagpeningar | 144.000 kr. |
| Farangurstrygging | 400.000 kr. |
| Farangurstöf | 8 klst. |
| Ferðatöf | 40000 klst. |
| Tafir á leið að flugvelli | 120.000 kr. |
| Tafir vegna yfirbókunar | 40.000 kr. |
| Innkaupakaskó | 400.000 kr. |
| Mannránstrygging | 720.000 kr. |
| Forfallatrygging | 350.000 kr. |
| Ábyrgðartrygging | 40.000.000 kr. |
| Kaskótrygging vegna bílaleigubíls | — |
| Viðbótarábyrgðartrygging vegna bílaleigubíls | USD 1.000.000 |
| Gildistími | — |
Premium World veitir ríkuleg ferðafríðindi, rýmri úttektarheimildir og hentar einkar vel þeim sem eru á ferð og flugi.
Þú safnar síðan 12 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 kr. af allri verslun, bæði innanlands og utan.
Þú færð 5.000 Vildarpunkta og 6.000 Fríðindastig þegar þú greiðir árgjald kortsins.
Gjaldfrjáls aðgangur að Saga Lounge í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir handhafa korts þegar flogið er með áætlunarflugi og leiguflugi Icelandair.*
Korthafar geta boðið einum gesti með sér í Saga Lounge, þó gegn gjaldi, alla daga vikunnar nema á fimmtudögum. Sjá nánari upplýsingar um skilyrði og gjald á vefsíðu Icelandair
Korthafar hafa aðgang að flýtiinnritun á Keflavíkurflugvelli þegar flogið er með Icelandair.
Með Priority Pass hefur þú aðgang að betri stofum erlendis, gegn vægu gjaldi samkvæmt verðskrá.
10% afsláttur af allri þjónustu Bagbee með því að nota afsláttarkóðann: ARIONPW. BagBee sækir farangurinn heim til þín, fer með til Keflavíkur og innritar farangurinn fyrir þig. Gildir þegar ef flogið er með Icelandair eða Neos.**
Þú hefur greiðan aðgang að bókunum í gegnum Visa Luxury Hotels Collection. Þar færðu bestu mögulegu verðin á yfir 900 lúxus hótelum auk annarra fríðinda.
Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.
Nú getur þú geymt kvittanirnar á öruggan hátt og hengt viðhengi og/eða skýringu við allar kreditkortafærslurnar þínar í appinu.
Þegar þú verslar á netinu og þörf er á staðfestingu greiðslu færðu tilkynningu frá Arion appinu sem leiðir þig á staðfestingarskjá greiðslunnar.
Að ýmsu þarf að huga fyrir fríið. Hér eru nokkur góð ráð til þeirra sem eru á ferð og flugi.
Nokkur ráð sem gott er að hafa í huga þegar verslað er á netinu.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.
Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.
SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.