Grunnur að fjárhagslegu öryggi barnsins þíns
Það borgar sig að byrja sparnaðinn snemma.

Það borgar sig að byrja sparnaðinn snemma.

Framtíðarreikningur er verðtryggður reikningur sem hentar vel fyrir langtímasparnað og er því frábært veganesti út í lífið.
Foreldrar og forráðamenn geta stofnað reikninginn með örfáum smellum í Arion appinu.
kr.
kr.
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |

Að fara í bankann og stofna reikning, fá aðgang að netbanka og fá sitt fyrsta kort til að greiða með eru allt saman stór skref í lífi barna og unglinga.
Hluti af því að þroskast og verða fullorðin er að læra smám saman að taka ákvarðanir um peninga og skilja hvernig fjármál virka. Það þarf þó að gerast í smáum skrefum og mikilvægt er að kenna börnum og unglingum á fjármál líkt og á aðra stóra þætti í lífinu.

Það er aldrei of snemmt að byrja að spara og eins er gott að byrja að kynna börn fyrir sparnaði á yngri árum. Fyrstu skrefin í að kenna sparnað eru oftast tekin með því að fylla sparibauk og koma með hann í bankann og fá jafnvel glaðning með heim að launum.

Þegar fjölskyldan stækkar fylgir því bæði gleði og nýjar áskoranir. Þá er gott að huga að fjármálum heimilisins tímanlega, því barn í vændum kallar á breytingar bæði í tekjum og útgjöldum. Það er þó snjallt að huga að fjármálunum áður en ákveðið hefur verið að fjölga í fjölskyldunni því gott er að hafa myndað varasjóð til þess að brúa fjárhagslega bilið sem myndast í fæðingarorlofi.

Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 ára og 18 ára og verkefni dagsins eru þau sömu. Lagalega er þó mjög mikill munur á milli þessara tveggja daga og það er ótalmargt sem breytist þegar klukkan slær miðnætti á síðasta degi sautjánda aldursársins.