Steinunn Hlíf hættir í framkvæmdastjórn Arion banka

Steinunn Hlíf hættir í framkvæmdastjórn Arion banka

Steinunn Hlíf hættir í framkvæmdastjórn Arion banka - mynd

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Steinunn Hlíf hefur leitt mikilvægar breytingar þegar kemur að þjónustu bankans og upplifun viðskiptavina. Við höfum byggt sterkan grunn sem mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun þjónustu okkar og upplifun viðskiptavina. Ég þakka Steinunni einstaklega gott samstarf og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.“