Mikilvægum áfanga náð í að uppfylla fyrirvara í samningum um kaup Rapyd á Valitor – endurkaupaáætlun bíður samþykkis eftirlitsaðila

Með samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nú liggur fyrir hefur mikilvægum áfanga verið náð í að uppfylla fyrirvara í samkomulagi Arion banka og Rapyd um kaup Rapyd á Valitor sem tilkynnt var um 1. júlí sl. Fyrirvarar samkomulagsins teljast þó enn sem komið er ekki að fullu uppfylltir þar sem formlegt samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á kaupunum liggur ekki fyrir. Stefnt er að því að lúkning viðskiptanna verði á næstunni.
Væntur hagnaður Arion banka vegna sölunnar, að frádregnum sölukostnaði, er áætlaður um 5 milljarðar króna, miðað við gengi dagsins.
Arion banki hefur óskað eftir heimild frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands til að hrinda í framkvæmd 10 milljarða króna endurkaupaáætlun í kjölfar lúkningar viðskiptanna.