28. september 2015
Sýning á verkum Georgs Guðna
Laugardaginn 12. september síðastliðinn var opnuð sýning á verkum listmálarans Georgs Guðna í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Á opnuninni hélt myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi, fyrirlestur um verk Georgs Guðna, sem hann nefndi Myndir af engu. Fjöldi fólks kom í bankann af þessu tilefni og var gerður góður rómur að fyrirlestrinum.
Georg Guðni (1961-2011) er einn áhrifamesti listamaður þjóðarinnar en með málverkum sínum af íslenskri náttúru er hann talinn hafa endurvakið landslagið í íslenskri myndlist. Á sýningunni er að finna valin verk frá árunum 1985-2009, þar á meðal verk sem hafa ekki verið sýnd áður hér á landi. Sýningin stendur til 11. desember næstkomandi.Hér má horfa á fyrirlesturinn í heild sinni: