Arion banki er í 1. sæti yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Arion banki er efstur á blaði yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri á nýjum lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar sem birtur var í Viðskiptablaðinu í dag. Á listanum eru stór fyrirtæki sem þykja standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri.
Til þess að komast á lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði, meðal annars að hafa skilað jákvæðri rekstrarafkomu á rekstrarárinu 2017, tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna, eignir yfir 80 milljónum og eiginfjárhlutfallið þarf að hafa verið yfir 20%. Auk þess er tekið tillit til annarra þátta sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Ríflega 1.100 fyrirtæki eru á lista að þessu sinni, eða um 3% fyrirtækja landsins.