Fjárfestingarsjóður Evrópu og Arion banki undirrita 107 milljóna evra samning til að örva nýsköpun íslenskra fyrirtækja

Fjárfestingarsjóður Evrópu og Arion banki undirrita 107 milljóna evra samning til að örva nýsköpun íslenskra fyrirtækja

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Pier Luigi Gilibert, framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Evrópu rita undir samninginn. - mynd
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Pier Luigi Gilibert, framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Evrópu rita undir samninginn.
Pier Luigi Gilibert, Höskuldur H. Ólafsson og Tarvo Kungla, staðgengill sendiherra ESB á Íslandi, sem allir héldu stutta tölu við undirritunina. - mynd
Pier Luigi Gilibert, Höskuldur H. Ólafsson og Tarvo Kungla, staðgengill sendiherra ESB á Íslandi, sem allir héldu stutta tölu við undirritunina.

Arion banki og European Investment Fund, EIF, hafa undirritað svonefndan InnovFin ábyrgðarsamning sem miðar að hagstæðum lánveitingum til lítilla og meðalstórra fyrirtækja er hyggjast innleiða nýjungar í starfsemi sinni.

InnovFin samningurinn gerir Arion banka kleift að veita þessum fyrirtækjum lán á næstu tveimur árum sem eru studd með ábyrgð frá Fjárfestingarsjóði Evrópu í samræmi við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunarrammaáætlun ESB. Áætlað er að stuðningur ESB við íslensk nýsköpunarfyrirtæki leiði af sér lánasafn að andvirði 107 milljón evra. EIF ábyrgist helming lánsfjárhæðar hvers láns, sem Arion banki veitir, samkvæmt samningnum.

Framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Evrópu, Pier Luigi Gilibert:

„Það gleður okkur að undirrita fyrsta InnovFin ábyrgðarsamninginn á Íslandi, til hagsbóta fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þetta er jafnframt fyrsti InnovFIn samningurinn sem Fjárfestingarsjóður Evrópu gerir í EFTA ríki. 107 milljónir evra er veruleg upphæð fyrir íslensk fyrirtæki og við erum sannfærð um að lánasafnið, sem Arion banki ætlar að byggja upp, stutt ábyrgðum InnovFin, muni efla nýsköpun á Íslandi.“

Framkvæmdastjóri ESB í málefnum rannsókna, vísinda og nýsköpunar, Carlos Moedas:

„Íslensk fyrirtæki, sem leggja áherslu á nýsköpun, geta nú notið góðs af ábyrgðum Evrópusambandsins sem geta alls numið 107 milljónum evra í takt við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunarrammaáætlun ESB. Samningurinn, sem var undirritaður í dag, mun hjálpa fyrirtækjum að ná markmiðum sínum og leggja sitt af mörkum til hagvaxtar og atvinnusköpunar á Íslandi.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við leggjum mikla áherslu á að styðja við hvers kyns nýsköpun. Samningurinn við European Investment Fund er liður í því og gerir okkur kleift að lána til lítilla og meðalstórra fyrirtæki vegna fjárfestinga þeirra í nýsköpun – í víðustu merkingu þess orðs. Þessi samningur gerir okkur kleift að lána á hagstæðari kjörum en ella þar sem sjóðurinn tekur á sig hluta þeirrar áhættu sem í lánveitingunni felst. Við erum spennt að kynna þessa nýjung fyrir íslenskum fyrirtækjum sem eru að fjárfesta í nýsköpun, vöruþróun, nýjum framleiðsluaðferðum eða sókn á nýja markaði.“

Markmiðið með ábyrgðum InnovFin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er að hvetja fjármálastofnanir til að lána fyrirtækjum, með færri en 500 starfsmenn, til fjárfestinga og/eða fjármögnunar rannsókna, þróunar og nýsköpunar, með fjárstuðningi frá ESB. Fjárfestingarsjóður Evrópu velur fjármálastofnanir víðs vegar um Evrópu sem lýst hafa yfir áhuga á því að gerast milliliðir.

Um Fjárfestingarsjóð Evrópu

Fjárfestingarsjóður Evrópu (EIF) er hluti af Evrópska fjárfestingarbankanum. Helsta hlutverk sjóðsins er að styðja við örsmá, lítil og meðalstór fyrirtæki með því að greiða þeim aðgang að fjármagni. Fjárfestingarsjóður Evrópu þróar lausnir á sviði áhættu- og vaxtarfjármagns, ábyrgða og örfjármögnunar sem eru sérsniðnar fyrir slík fyrirtæki. Þannig styður sjóðurinn við markmið ESB um að styðja við nýsköpun, rannsóknir og þróun, frumkvöðlastarf, vöxt og atvinnusköpun.

Um InnovFin

Með ábyrgðarfyrirgreiðslu InnovFin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki fást ábyrgðir og gagnábyrgðir fyrir fjármögnun að upphæð frá 25 þúsundum evra til 7,5 milljóna evra til þess að auka aðgengi lítilla og meðalstórra nýsköpunarfyrirtækja (með færri en 500 starfsmenn) að lánsfjármagni. Fjárfestingarsjóður Evrópu stýrir verkefninu með milligöngu banka og annarra fjármálastofnana í ESB-ríkjum og öðrum aðildarlöndum. Fjárfestingarsjóður Evrópu tryggir milliliðina fyrir hluta af því tapi sem kann að verða vegna lánveitinga samkvæmt áætluninni.

Meðfylgjandi er mynd af því þegar Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Pier Luigi Gilibert, framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Evrópu rita undir samninginn. Einnig er mynd af Pier Luigi Gilibert, Höskuldi H. Ólafssyni og Tarvo Kungla, staðgengli sendiherra ESB á Íslandi, sem allir héldu stutta tölu við undirritunina.