Arion banki lækkar íbúðalánavexti

Arion banki lækkar íbúðalánavexti

Arion banki hefur lækkað vexti íbúðalána. Vaxtalækkunin nú hefur fyrst og fremst áhrif á ný íbúðalán og verðtryggð lán sem bera breytilega vexti. Vextir lána sem tekin hafa verið á undanförnum árum og bera fasta vexti breytast ekki.

Helstu breytingar eru:

Verðtryggð lán

  • Breytilegir vextir eru nú 3,85% en voru 4,20% 
  • Fastir vextir til fimm ára eru nú 3,9% en voru 4,35% 
  • Fastir vextir út lánstímann eru nú 4,30% en voru 4,50% 

Óverðtryggð lán

  • Fastir vextir til þriggja ára eru nú 6,80 % en voru 6,85%. 

Að auki þá býður Arion banki nú nýja tegund óverðtryggðra lána með breytilega vexti sem eru ákvarðaðir af bankanum og bera 6,10% vexti. Áður voru í boði lán sem hafa vaxtaviðmið af vöxtum Seðlabanka Íslands og breytast vextir þeirra lána ekki nú, eru áfram 6,30%.