Arion banki styður keppendur á Ólympíumóti fatlaðra

Arion banki styður keppendur á Ólympíumóti fatlaðra

Arion banki styður keppendur á Ólympíumóti fatlaðra - mynd

Dagana 7.-18. september næstkomandi fer Ólympíumót fatlaðra (Paralympics) fram í Rio de Janeiro í Brasilíu, á sama stað og við sömu aðstæður og Ólympíuleikarnir fara fram þessa dagana.

Að þessu sinni tókst fimm íslenskum afreksmönnum úr röðum fatlaðra að tryggja sér þátttökurétt á leikunum. Keppendur fyrir Íslands hönd eru þau Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir og Jón Margeir Sverrisson sem keppa í sundi, Helgi Sveinsson sem keppir í frjálsum íþróttum og Þorsteinn Halldórsson keppir í bogfimi, fyrstur Íslendinga.

Arion banki er stoltur styrktaraðili Íþróttasambands fatlaðra og styður við bakið á keppendum á Ólympíumóti fatlaðra.