Sumarlaunaleikur Arion: Skemmtileg myndbönd og frábær viðbrögð

Sumarlaunaleikur Arion hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem árlegt og afar vinsælt markaðsátak. Í ár hvöttum við unglinga í sumarvinnu til að taka upp stutt og sniðug myndbönd undir myllumerkinu #ArionSport – og viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Alls bárust um 100 myndbönd og tóku því mörg hundruð krakkar þátt í leiknum, þar sem oft voru allt að tíu þátttakendur saman í hverju myndbandi. Myndböndin bera vitni um mikla sköpunargleði, frjóa hugsun og ótrúlega lipurð í tæknilegri útfærslu. Það er magnað að sjá hversu hratt þessi kynslóð tileinkar sér nýja færni – þau setja saman vönduð og vel klippt myndbönd á örfáum mínútum þar sem áður hefði þurft upptökuteymi og marga klukkutíma vinnu.
Við viljum þakka öllum sem tóku þátt í sumar og hrósa krökkunum fyrir frábærar hugmyndir og skemmtileg myndbönd.
Hér má sjá stutt úrval úr þeim allra bestu.