Freyr Þórðarson var með erindi á ferðaþjónusturáðstefnu í Hörpu f.h. Arion banka
Ferðaþjónusturáðstefnan og sýningin Iceland Tourism Invest Conference and Exhibition (ITICE) fór fram í Hörpu dagana 29. febrúar - 1. mars.
Á einni af pallborðsumræðum ráðstefnunnar flutti Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, erindi sem bar heitið Við erum öll í ferðaþjónustu. Fjallaði Freyr meðal annars um aðgengi ferðaþjónustu að fjármagni, ruðningsáhrif vaxandi fjölda ferðamanna á allt hagkerfið og metnaðarfullt samstarf Arion banka við Austurhöfn um byggingu fimm stjörnu Marriot Edtion hótels.
Fjöldi íslenskra og erlendra fyrirlesara héldu erindi á ráðstefnunni sem haldin var samhliða sýningu þar sem fjöldi birgja ferðaþjónustunnar kynntu það nýjasta í vörum og þjónustuframboði.
Í lok ráðstefnunnar voru pallborðsumræður sem Freyr tók þátt í ásamt, Halldóri Benjamín Þorbergssyni frá Icelandair Group, Helga Júlíussyni frá Landsbréfum, Árna Þór Þorbjörnssyni frá Landsbankanum og Þórði H. Hilmarssyni frá Íslandsstofu. Pallborðið ræddi m.a. vaxandi hótelmarkað á Íslandi, þörfina á fjármagni og aukningu í afþreyingartengdri ferðaþjónustu.