16. október 2015
Breytingar á vöxtum íbúðalána
Arion banki hefur gert breytingar á vöxtum íbúðalána. Vaxtalækkanir hafa áhrif á verðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum og föstum vöxtum til fimm ára. Þá lækka fastir vextir á óverðtryggðum lánum til þriggja og fimm ára en vextir á óverðtryggðum breytilegum vöxtum hækka.
Helstu breytingar eru:
Verðtryggð lán
- Breytilegir vextir verða 3,65% en voru 3,85% (tekur gildi 25. október 2015)
- Fastir vextir til fimm ára eru nú 3,80% en voru 3,90%
Óverðtryggð lán
- Fastir vextir til þriggja ára verða 7,15% en voru 7,40%
- Fastir vextir til fimm ára verða 7,25 en voru 7,50%
- Breytilegir vextir verða 7,05% en voru 6,60%
Vaxtatöflu Arion banka má finna í heild sinni hér.