Arion og Vörður - samstarf um betri þjónustu

Arion býður upp á víðtækustu fjármálaþjónustu á Íslandi. Fjölbreytt þjónusta veitir okkur sérstöðu – fjölbreyttur hópur viðskiptavina, með ólíkar þarfir og markmið, nýtir sér öfluga þjónustu á sviði lána, sparnaðar og fjárfestinga, eins og lífeyrismála, sjóða og verðbréfa, og trygginga.
Snar þáttur í þessu fjölbreytta þjónustuframboði er farsælt samstarf Arion og tryggingafélagsins Varðar, sem hófst fyrir alvöru árið 2017. Markmiðið með samvinnu Arion banka og Varðar er að nýta samlegðina af sameiginlegu eignarhaldi og þau tækifæri sem tækniþróun síðustu ára hefur skapað til að bæta enn frekar þjónustu okkar við viðskiptavini og styðja við árangur þeirra og fjárhagslega heilsu.
Í hverju felst samstarf Arion og Varðar?
Betri þjónusta í appi og á vef
Arion banki hefur lengi verið í fararbroddi í stafrænum lausnum á bankamarkaði. Með samstarfi Arion og Varðar viljum við styrkja þessa stöðu enn frekar og leiða þróun í stafrænni tryggingaþjónustu á Íslandi. Til að mynda geturðu nú nýtt þér hið margverðlaunaða Arion app til að stofna til trygginga hjá Verði og hafa yfirsýn yfir tryggingamálin.
Betri þjónusta í útibúum
Á síðustu árum hefur Vörður opnað þrjár glæsilegar þjónustuskrifstofur í útibúum Arion banka víðs vegar um landið – á Smáratorgi í Kópavogi; á Glerártorgi á Akureyri; og á Austurvegi 10, Selfossi – auk þess að starfrækja þjónustuskrifstofu í höfuðstöðvum Arion, Borgartúni 19. Opnun þjónustuskrifstofanna er liður í því að viðskiptavinir okkar geti nálgast alhliða bankaþjónustu og tryggingar á einum og sama stað til að spara sér sporin. Ráðgjafar Varðar aðstoða þig við hvaðeina sem lýtur að tryggingum og tjónum og ráðgjafar Arion veita alla þjónustu er snýr að fjármálum og leiðbeina með notkun á stafrænum þjónustuleiðum. Við tökum alltaf vel á móti þér í kaffi og ráðgjöf.
Betri þjónusta fyrir fyrirtæki
Öflugt teymi Arion á fyrirtækjasviði sér til þess að fyrirtæki í viðskiptum við okkur fái ævinlega bestu mögulegu þjónustu, sérsniðna að sínum kröfum.
Við liðsinnum stórum sem smáum fyrirtækjum og sjáum um allar banka- og tryggingaþarfir þeirra. Fyrirtæki njóta góðs af hagræðingunni sem hlýst af því að hafa fjármálasérfræðinga Arion og tryggingasérfræðinga Varðar á einum og sama stað. Þarfir fyrirtækja og þeirra sem eru í rekstri eru oft flóknar og því einfaldar það líf viðskiptavina okkar að hafa alla þjónustu undir sama þaki og hafa aðgang að víðsýnu fólki sem skilur ólíkar þarfir.
Leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi
Arion hefur að markmiði að einfalda líf viðskiptavina sinna eins og kostur er, með því að veita bestu þjónustuna, bæði stafrænt og í útibúum, og á sem flestum sviðum fjármála, hvort sem um ræðir hefðbundna bankaþjónustu, tryggingar, sjóðastýringu eða eignastýringu eða fyrirtækjaráðgjöf. Samlegðin í starfsemi Arion og Varðar hefur gert Arion mögulegt að byggja upp öflugar þjónustuskrifstofur fyrir tryggingar og bjóða upp á enn betri stafræna þjónustu.