Styrmir Sigurjónsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka hættir störfum
Styrmir SigurjónssonStyrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum. Styrmir hefur verið framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs og setið í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2020. Hann mun gegna starfi framkvæmdastjóra þar til nýr aðili tekur við starfinu.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Styrmir hefur leitt umfangsmiklar breytingar þegar kemur að upplýsingatæknimálum hjá Arion banka og gert það með afar farsælum hætti. Ég þakka Styrmi hans góðu störf í þágu bankans og óska honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekst á hendur í framtíðinni.“