Frestun vaxtabreytinga frá 28. júní
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Vaxtahækkun óverðtryggðra neytendalána með breytilegum vöxtum sem taka átti gildi 29. júlí síðastliðinn mun ekki taka gildi fyrr en 25. september næstkomandi. Frestunin nær fyrst og fremst til íbúðalána, bílalána og lána sem bera kjörvexti. Viðskiptavinum með óverðtryggð neytendalán með breytilega vexti hefur verið tilkynnt um þessa frestun á hækkun vaxta.
Frestunin er tilkomin vegna þess að þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um 1 prósentustigs vaxtahækkun á vef bankans 28. júní sl., sem átti að taka gildi 30 dögum síðar, misfórst að tilkynna viðskiptavinum um breytinguna með beinum hætti. Því mun bankinn fresta vaxtahækkuninni og endurgreiða ofgreidda vexti en ofgreiddir vextir ná aðeins til þriggja síðustu daga júlímánaðar.
Einstaklingar með lán hjá Arion banka sem bera óverðtryggða breytilega vexti munu því greiða einu prósentustigi lægri vexti en þeir hefðu annars gert frá 29. júlí til 25. september.
Í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 24. ágúst sl. um að hækka stýrivexti um 0,75 prósentustig eru frekari breytingar á vöxtum Arion banka til skoðunar.