Verslun erlendis: Hætta á röngum heimildum og færslum vegna aurajöfnunar VISA

Viðskiptavinir sem versla erlendis í íslenskum krónum geta lent í því að upphæðir margfaldist vegna breytinga hjá VISA sem miða að því að hætta að nota aura í kortaviðskiptum.
Þetta vandamál mun mögulega vara í einhverja daga eða þar til allir færsluhirðar hafa uppfært sín kerfi.
Við hvetjum viðskiptavini til að velja gjaldmiðil þess lands sem þeir eru í en ekki íslensku krónuna við kaup á vörum og þjónustu erlendis. Einnig er mikilvægt að fylgjast vel með því hvernig færslan skilar sér og hvort hún sé ekki örugglega rétt.
Í þeim tilfellum þar sem færslan er ekki rétt þarf að gera endurkröfu á færsluna. Það er gert hér og þarf að taka fram að endurkröfuástæða sé „Röng upphæð“. Ekki er hægt að gera endurkröfu á heimild eða færslu á bið, bara á færslu sem er komin inn á reikningsyfirlit.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.