Hlusta á norðurljósin og borða snarl úr fiskroði

Hlusta á norðurljósin og borða snarl úr fiskroði

Hlusta á norðurljósin og borða snarl úr fiskroði  - mynd

Að hlusta á norðurljósin og borða snarl úr fiskroði gæti orðið að veruleika gangi hugmyndir frumkvöðlanna eftir sem nú taka þátt í Startup Energy Reykjavík. Með þátttökunni fá frumkvöðlarnir endurgjöf og góð ráð frá ríflega 60 sérfræðingum í íslensku atvinnulífi við að koma viðskiptahugmynd sinni eins langt og hægt er á 10 vikum. Að auki fá teymin aðgang að sameiginlegri vinnuaðstöðu að Borgartúni 20 þar sem þau geta unnið með og lært af öðrum frumkvöðlum.

Startup Energy Reykjavík sem nú stendur yfir lýkur með sérstökum fjárfestadegi sem haldinn verður í höfuðstöðvum Arion banka þann 18. nóvember. Á fjárfestadeginum munu teymin kynna hugmyndir sínar fyrir hugsanlegum fjárfestum. Áhugasamir fjárfestar geta skráð sig á vefsíðu Startup Energy Reykjavík.

Aðeins sjö fyrirtæki eru valin til þátttöku hverju sinni. Hvert þeirra fær 5 milljónir króna í fjárfestingu frá fjórum bakhjörlum verkefnisins: Arion banka, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð og GEORG.

Fyrirtækin sem í ár voru valin til þátttöku í Startup Energy Reykjavík eru:

Arctic Sea Minerals
Saltframleiðsla sem skilar afurð sem er betri fyrir heilsuna og inniheldur minna sódíum.

ELF Tech
Elf Tech þróar áfram tækni sem gerir mögulegt að skyggnast undir yfirborð jarðar og hlusta á norðurljósin.

Health Snacks
Fyrirtækið framleiðir nýstárlegt snarl úr fiskroði.

Ískristallar
Vinna að því að koma á markað próteinum sem hafa þann eiginleika að draga úr ískristalla myndun í matvælum, sem leiðir til mun lengra geymsluþols matvæla í frystingu.

Kjarni
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í eyðingu úrgangs með notkun skordýra.

Mýsköpun
Fjölnýting jarðvarma við ræktun og hagnýtingu þörunga úr Mývatni.

Zeto
Hefur þróað og prófað lífræna sápu- og húðvörulínu þar sem þaraþykkni er notað í stað vatns, án fylliefna og kemískra aukaefna.