Besta bankaappið – níunda árið í röð

Nýverið var Arion appið valið besta bankaappið af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – níunda árið í röð
Það er okkur metnaðarmál að vera stöðugt að þróa og bæta Arion appið þannig að það mæti sem best þörfum okkar viðskiptavina. Hægt er að sinna öllum helstu bankaviðskiptum í appinu. Þar geta foreldrar jafnframt fylgst með virkni á reikningum barna sinna og stofnað bæði sparnaðarreikninga og debetkort fyrir þau með fljótlegum og einföldum hætti.
Einnig er hægt að sinna sjóða- og verðbréfaviðskiptum og fá góða yfirsýn yfir stöðu verðbréfasafns og lífeyrissparnaðar. Lífeyrismál hafa aldrei verið aðgengilegri.
Þau sem tryggja hjá Verði geta að auki séð yfirlit yfir sínar tryggingar og óskað eftir tilboðum.
Í appinu er einnig hægt að skrá sig í Arion fríðindi því við viljum að viðskiptavinir okkar njóti góðs af því að vera í viðskiptum við okkur. Í appinu er skýrt yfirlit yfir þau fríðindi sem viðskiptavinir njóta sem og þau auknu fríðindi sem í boði eru með auknum viðskiptum.
Einnig eru í Arion appinu framúrskarandi kortalausnir fyrir fyrirtæki þar sem m.a. er hægt að taka mynd af kvittunum og festa við færsluyfirlit og stýra heimildum á þægilegan hátt.