16. október 2014
Arion banki lýkur víxlaútboði
Arion banki hf. lauk í gær útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.680 milljónir kr. og tekið var tilboðum fyrir 2.120 milljónir króna á 6,00% flötum vöxtum. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi.