Aðsókn í viðskiptahraðalinn Startup Reykjavik aldrei verið meiri
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer nú af stað í sjöunda sinn í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups. Hraðallinn hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga. Lögð er áhersla á að ná til öflugra teyma með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greinda, ætlaðar alþjóðamarkaði. Umsóknum í hraðalinn fjölgaði um 45% frá síðasta ári, en alls bárust 270 umsóknir í ár. Athygli vekur að umsóknir erlendis frá eru um helmingur umsókna.
Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní n.k. Þau eru afar fjölbreytt og komin vel af stað, flest eru nú þegar farin að afla tekna. Þrjú þeirra koma erlendis frá: Bretlandi, Svíþjóð og Spáni.
- Anymaker - Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrívíddarhugbúnað ætlaðan börnum.
- Blockcycle - Kerfi sem nýtir Blockchain tæknina til að rekja feril umbúða frá afurð til endastöðvar.
- Ekki Banka - Einföld og snjöll lausn sem hjálpar einstaklingum að hagnýta eigin fjárhagsupplýsingar.
- Huginn.care - Skýjalausn, fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem ætlað er að einfalda atvika- og dagbókaskráningar skjólstæðinga í umönnun.
- Koride - Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna ferðamenn á Íslandi.
- Leiguskjól - Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar lausnir fyrir leigumarkað.
- Melius - Hannar og framleiðir vélbúnað sem gerir snjallsímum kleift að fylgja því sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á símanum.
- Sea Data Center - Tæknilausn sem byggir á einstökum gagnagrunni og ætlað er að auka virði viðskipta meðal fyrirtækja í sjávarútvegi.
- Taktikal - Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum með sjálfvirknivæðingu á ýmsum viðskiptaferlum.
- Unify Me - Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga öll innri samskipti á einum stað.
Teymin tíu munu njóta ráðgjafar og leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, koma vöru á markað og hraða vexti. Arion banki fjárfestir jafnframt 2,4 m.kr. í hverju fyrirtæki gegn 6% eignahlut í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavik Invest ehf. Frá upphafi hafa 60 fyrirtæki farið í gegnum viðskiptahraðalinn og eru 39 þeirra enn starfandi. Þau fyrirtæki sem tekið hafa þátt í Startup Reykjavik hafa í heildina fengið fjármögnun sem nemur um 2,8 milljörðum króna og er áhugavert að sjá að um 70% þess fjármagns er hlutafé frá fjárfestum.
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavik var stofnaður árið 2012 í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki er eigandi Startup Reykjavik og fjármagnar verkefnið að fullu. Icelandic Startups sér um framkvæmd verkefnisins. Startup Reykjavik var valinn besti viðskiptahraðallinn á Norðurlöndunum árið 2015.
Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:
„Áfram sýnir það sig hversu mikilvægt Startup Reykjavik er í frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfinu. Úr hraðlinum hafa í gegnum tíðina komið einkar áhugaverð fyrirtæki sem hafa notið þess stuðnings sem þar er í boði. Við hlökkum til að vinna með þeim fyrirtækjum í sumar sem valin hafa verið til þátttöku að þessu sinni.“
Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandic Startups:
„Icelandic Startups hefur síðustu ár lagt aukna áherslu á að efla tengsl við alþjóðlegt sprotaumhverfi og því er ánægjulegt að sjá aukinn áhuga frumkvöðla erlendis frá á þátttöku í Startup Reykjavik. Við teljum það til marks um aukinn trúverðugleika á stuðningsumhverfinu hér heima. Gróskan í frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi er mikil og spennandi verður að vinna með þessum flottu fyrirtækjum í sumar.“