11. ágúst 2015
Sumar á Selfossi
Útibúið okkar á Selfossi tók þátt í bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi síðastliðinn föstudag.
Blaki og Ari komu og heilsuðu upp á krakkana og gáfu þeim blöðrur, hoppukastalar voru á svæðinu og stelpur frá fimleikadeildinni á Selfossi buðu upp á andlitsmálningu.
Kaffi, svali, kleinur og súkkulaði runnu ljúflega niður í góða veðrinu sem lék við fólkið og mikil og skemmtileg stemning skapaðist fyrir utan útibúið.
Takk fyrir okkur!