Endurgreiðslur vegna Farvel ehf.
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Arion banki vill benda viðskiptavinum sínum á að ef greitt var fyrir ferð með Farvel ehf. með greiðslukorti útgefnu af bankanum þá geta viðskiptavinir fengið ferðina endurgreidda að fullu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Skilyrðin eru eftirfarandi:
- Þjónustuloforð Farvel var ekki uppfyllt, þ.e. ferðin var felld niður.
- Viðskiptavinur hefur gert kröfu um endurgreiðslu í gegnum þjónustugátt á vef Ferðamálastofu og skilað með kröfunni viðeigandi gögnum fyrir 8. mars 2020. Ferðamálastofa endurgreiðir aðeins hluta ferðarinnar.
- Innan 30 daga eftir að formlegt svar berst frá Ferðamálastofu þarf að óska eftir endurgreiðslu frá Arion banka á eftirstöðvum kortafærslunnar vegna kaupa á ferðinni.
- Með endurkröfubeiðni til Arion banka þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:
- Útfyllt og undirritað endurkröfueyðublað sem er á vef bankans.
- Ferðagögn frá Farvel (bókunarstaðfesting, farseðlar, kvittanir fyrir greiðslu, pakkasamningur o.s.frv.).
- Formlegt svar frá Ferðamálastofu vegna óskar um endurgreiðslu.
- Með endurkröfubeiðni til Arion banka þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:
Mikilvægt er að senda beiðni um endurkröfu til Arion banka sem fyrst eftir að formlegt svar fæst frá Ferðamálastofu til að tryggja að krafan falli ekki á tíma.
Ástæða þess að ekki er hægt að gera endurkröfu vegna greiðslu með greiðslukorti fyrr en formlegt svar liggur fyrir frá Ferðamálastofu er að aðeins er hægt að gera endurkröfu á þann hluta kortafærslunnar sem ekki fæst endurgreiddur í gegnum tryggingarfé Farvel hjá Ferðamálastofu.
Við hvetjum því alla sem eiga kröfu á Farvel að lýsa kröfu í gegnum þjónustugátt Ferðamálastofu fyrir 8. mars og hafa svo samband við Arion banka um leið og formlegt svar fæst frá Ferðamálastofu.
Hægt er að senda fyrirspurnir á arionbanki@arionbanki.is.