Arion banki gerir sátt við Samkeppniseftirlitið
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Arion banki hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna brots á sáttargerð bankans og eftirlitsins frá árinu 2017. Með sáttinni viðurkennir bankinn frávik frá þeirri framkvæmd sem kveðið var á um í sáttargerðinni frá 2017. Arion banka þykir miður að mistök hafi verið gerð og hefur gripið til viðeigandi ráðstafana til að tryggja rétta framkvæmd.
Sáttargerðin frá árinu 2017 lá til grundvallar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 24/2017, Aðgerðir til að efla samkeppni í almennri viðskiptabankaþjónustu við einstaklinga og lítil fyrirtæki. Þar var kveðið á um að óheimilt sé að innheimta uppgreiðslugjald vegna lána til lítilla fyrirtækja sem bera breytilega vexti.
Í tengslum við úttekt Samkeppniseftirlitsins á framkvæmd bankans á ákvæðum sáttargerðarinnar var farið yfir tæplega þrjú þúsund lánasamninga við lítil fyrirtæki. Kom þá í ljós að í níu lánasamningum höfðu mistök verið gerð þar sem í þeim var kveðið á um uppgreiðslugjald. Í einu tilviki hafði uppgreiðslugjald verið innheimt og hefur það verið endurgreitt.
Bankinn hefur farið yfir alla lánaferla sína og m.a. uppfært skjalgerðarferla, komið á sjálfvirkri vöktun vegna skráningar í útlánakerfi bankans og aukið fræðslu fyrir starfsfólk. Sáttin við Samkeppniseftirlitið felur í sér að bankinn fellst á að greiða sekt að upphæð 80 milljónir króna.