Framlenging úrræða vegna íbúðalána Grindvíkinga

Framlenging úrræða vegna íbúðalána Grindvíkinga

Mynd: grindavik.is - myndMynd: grindavik.is

Í nóvember á síðasta ári bauð Arion banki Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín hjá bankanum vegna húsnæðis í Grindavík í þrjá mánuði auk þess sem bankinn felldi niður vexti og verðbætur lánanna á tímabilinu. Þannig vildum við leggja okkar af mörkum til að létta á þeim áhyggjum sem hvíldu á íbúum Grindavíkur.

Í ljósi atburða síðustu daga og vikna og þeirrar óvissu sem Grindvíkingar standa enn frammi fyrir bjóðum við Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín hjá bankanum í þrjá mánuði til viðbótar og munum við jafnframt fella niður vexti og verðbætur lánanna til aprílloka.

Við munum á næstu dögum setja okkur í samband við viðskiptavini okkar frá Grindavík til að fara yfir þeirra stöðu og framkvæmd úrræðisins.