Arion er banki ársins að mati The Banker – fjórða árið í röð

Hið virta fjármálatímarit, The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion sem banka ársins á Íslandi árið 2024. Er þetta fjórða árið í röð sem Arion banki hlýtur nafnbótina.
Í rökstuðningi sínum vísar The Banker meðal annars til þess að bankinn setti sér nýja stefnu á árinu með áherslu á að efla fjárhagslegt heilbrigði viðskiptavina og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun. Tímaritið nefnir einnig áherslu bankans á stafrænar lausnir þegar kemur að því að hrinda stefnunni í framkvæmd og vísar til innleiðingar nýs verklags við forgangsröðun og þróun stafrænna verkefna í samræmi við nýja framtíðarsýn. Þetta nýja verklag hefur þegar skilað umtalsverðum árangri í formi aukinnar framleiðni stafrænna lausna. Meðal þeirra lausna sem bankinn hefur kynnt til leiks er Fjölskyldan, en foreldrar geta nú fengið aðgang að reikningum barna sinna og stofnað sparnað fyrir þeirra hönd. Að auki er hægt að fá yfirlit yfir vörur maka ef viðeigandi umboð hefur verið veitt. Þannig er nú hægt að hafa yfirlit yfir fjármál fjölskyldunnar á einum stað í Arion appinu.
Arion banki var fyrr á árinu einnig valinn banki ársins 2024 á Íslandi af fjármálatímaritinu Euromoney.