Almennt hlutafjárútboð í Reitum 25.-27.mars
- Reitir vænta þess að viðskipti með hlutabréf félagsins geti hafist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland 9. apríl
- Arion banki býður 13,25% hlut í almennu útboði
- Stærð útboðsins nemur að lágmarki 5,5 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 55,5 krónur á hlut
Áskriftarleiðir og verðlagning í útboðinu
Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta og nemur samanlögð stærð þeirra 100.000.000 hlutum. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 55,5–63,5 krónur á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónir króna. Þar verður lágmarksverð 55,5 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi A.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita:
„Skráning Reita mun marka stór tímamót fyrir félagið og hluthafa þess sem í dag eru ríflega 200 talsins. Félagið sómir sér vel meðal fyrirtækja í kauphöll enda fjárhagslega sterkt og með traustan rekstur. Það verður einnig ánægjulegt að sjá nýjan 25 milljarða skuldabréfaflokk félagsins í kauphöll.“
Upplýsingar um félagið
17. mars 2015
Reitir hafa birt lýsingu hlutabréfa þar sem nálgast má helstu upplýsingar um félagið, hlutabréf þess og fyrirhugað útboð. Jafnframt hafa þeir birt fjárfestum kynningu á starfsemi sinni og útboðinu. Skjölin eru aðgengileg á vef félagsins og hér fyrir neðan.
REITIR fjárfestakynning
REITIR Lýsing hlutabréfa
Tilkynning um birtingu lýsinga
Reitir sérhæfa sig í þjónustu og rekstri atvinnuhúsnæðis með áherslu á verslunarhúsnæði, skrifstofu-húsnæði og hótelbyggingar á höfuðborgarsvæðinu. Heildareignir Reita í árslok 2014 námu 102 milljörðum króna. Fasteignir í eigu félagsins eru um 130 talsins og nálægt 410 þúsund fermetrum að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta Kringlunnar, Hilton Reykjavík Nordica, Icelandair hótel Reykjavík Natura, Kauphallarhúsið og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög samtals með tæpan helming tekna félagsins.