Besta bankaappið er 10 ára

Mesti árangurinn er að gera lífið
og fjármálin einfaldari fyrir alla
Þetta byrjaði ekkert ofsalega vel hjá okkur. Við vorum eftirbátar hinna bankanna og ég man sérstaklega eftir einni skjámynd úr fréttum þar sem farið var yfir samanburð á þeirri þjónustu sem bankarnir buðu upp á, en hann kom ekki vel út fyrir okkur. Við hökuðum ekki í eitt einasta box því við vorum ekki komin með neitt í loftið. Þarna vorum við byrjuð að vinna að lausn og þessi frétt ásamt ákalli viðskiptavina sparkaði hressilega í rassinn á okkur.
Nú er staðan þannig að appið hefur verið valið besta bankaappið frá því að samanburðamælingar byrjuðu. Nánast allir viðskiptavinir bankans nota appið og gera það að meðaltali rúmlega einu sinni á dag.
Appið hefur breyst mikið frá því við fórum út með það fyrst. Það er skemmtilega kjánalegt að rifja upp fyrsta útlitið. Þetta var auðvitað ný þjónusta að bjóða upp á bankaapp. Og af einhverjum ástæðum fannst okkur það frábær hugmynd að umgjörðin væri eins og veski. Þannig við vorum fyrstu árin með svartan leður bakgrunn og ekki nóg með það heldur var lógóinu þrykkt í leðrið og aðgerðarhnapparnir eins og bróderað leður með mjög augljósum saumum.
En gæfa okkar er að alveg frá upphafi hefur hönnunin gengið út á einfaldleika og það markmið að létta viðskiptavinum lífið. Hvað sem þú gerir í appinu, þá á það ekki að kosta vesen eða flækjur. Við þurfum öll að greiða reikninga og það á ekki að taka nema nokkrar sekúndur og þú átt að geta gert það meðan þú bíður við kassann úti í búð eða horfir á sjónvarpið. Sama gildir um lífeyrissparnað eða hlutabréfakaup eða hvað sem er. Draumurinn er að viðskiptavinir þurfi að hafa sem minnst fyrir fjármálunum.
Í svona þróun skiptir öllu að vanda til verka. Við fáum engan afslátt þótt við séum íslenskur banki. Fólk notar símann allan daginn og spyr sig því hvort appið standist samanburð við hugbúnað frá Apple, Google og Microsoft. En við höfum verið valin besta bankaappið ár eftir ár svo eitthvað erum að við að gera rétt.
Við sjáum það í alþjóðlegum samanburðarkönnunum að okkar app er notað oftar og meira en gengur og gerist hjá öðrum bönkum. Það tók ekki nema þrjú ár fyrir appið að taka fram úr netbankanum í heimsóknum og í dag eru yfir 100 þúsund virkir notendur og rúmlega 200 milljónir innskráninga komnar frá upphafi!

Vilhjálmur Alvar Halldórsson
Forstöðumaður stafrænna miðla hjá Arion
106.000
notendur
6.000.000
reikningar greiddir árlega
200.000.000+
innskráningar frá upphafi