Netsvik - glæpaalda sem herjar á fólk á öllum aldri

Netsvik eru orðin ein umfangsmesta glæpastarfsemi í heiminum ásamt fíkniefna- og vopnasölu. Æ fleiri lenda í þaulhugsuðum gildrum á netinu og tapa í mörgum tilvikum verulegum fjárhæðum. Netþrjótar eru ekki einrænir tölvunördar í kjallara; þeir hafa mótað vel skipulögð og alþjóðleg glæpasamtök sem samanlagt velta mörgum milljörðum árlega. Þeir mæta í 9-17 vinnu, í jakkafötum, gera fjárhagsáætlanir og framkvæma árangursmælingar – alveg eins og starfsmenn í hefðbundnu fyrirtæki. Hér er því því ekki um einhverja amatöra að ræða heldur einbeitta atvinnumenn í sínu „fagi“.
Við hjá Arion viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sporna við þessari rísandi öldu netglæpa. Í því skyni höfum við meðal annars sett af stað metnaðarfulla fræðsluherferð þar sem við tölum til Íslendinga á öllum aldri. Sumir telja, ranglega, að það sé oftast eldra fólk sem verður fyrir barðinu á netþrjótum – en það er alls ekki rétt. Aldursdreifingin meðal fórnarlamba er mjög jöfn. Öll okkar geta fallið fyrir brögðum netþrjóta enda eru þeir oftar en ekki lygilega útsmognir og fölsuð skilaboð þeirra og vefsíður verða sífellt meira sannfærandi.
Sönn svikamál með Sigursteini Mássyni
Í Sönnum svikamálum, sem er ný örþáttaröð og hluti af fræðsluherferð Arion um netglæpi, ræðir Sigursteinn Másson við fólk sem lent hefur í netsvikum og segir það frá reynslu sinni á opinskáan hátt. Markmiðið með Sönnum svikamálum er fyrst og fremst að varpa ljósi á þá staðreynd að öll okkar geta lent í netsvikum og hvetja fólk til að vera á varðbergi gagnvart ólíkum svikaleiðum og kynna sér hvernig megi varast þær. Við vildum að þetta efni næði til sem flestra – enda á það brýnt erindi við alla þjóðina – og því langaði okkur að fá einhvern sem kann að segja sögur. Við hefðum ekki getað verið heppnari með samstarfsmann; Sigurstein Másson kann að draga fram hið mannlega í flóknum málum. Sjón er sögu ríkari – við hvetjum þig einfaldlega til að horfa á þættina. Hver þáttur er aðeins þrjár mínútur.
Hægt er að horfa á örþáttaseríuna Sönn svikamál hér.
Þurfum að opna fyrir frekari umræðu um netglæpi
Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að netglæpir eru ekki lengur eitthvað „sem gerist annars staðar“ eða „sem aðrir lenda í“ – þetta er raunveruleiki sem snertir okkur öll. Við viljum breyta sýn samfélagsins á netsvik. Hér er ekki um eitthvað óljóst og tæknilegt að ræða heldur raunverulega glæpaöldu sem beinist ekki síst að almenningi, rétt eins og ef hópur innbrotsþjófa flakkaði um heilu hverfin á næturþeli og brytist þar inn í hvert húsið á eftir öðru.
Hvað er til ráða?
Lykilreglan er einföld: Flýttu þér hægt. Ekki taka skyndiákvarðanir eða láta undan þrýstingi um að framkvæma í flýti einhverjar aðgerðir í símanum eða tölvunni. Aldrei gefa upp PIN-númer. Ekki gefa upp viðkvæmar persónuupplýsingar á borð við kreditkortanúmer nema ganga fyrst úr skugga um að móttakandinn sé heiðvirður og sigli ekki undir fölsku flaggi.
Við þurfum líka að geta rætt þessa glæpi án þess að skammast okkar fyrir að verða fyrir þeim. Með þátttöku einstaklinga á borð við Friðrik Ómar og Hafdísi Rúnarsdóttur, sem sýnt hafa mikið hugrekki með því að stíga fram og deila reynslu sinni, vonumst við til að brjóta niður skömmina og opna á frekari umræðu um netglæpi í samfélaginu.
Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sporna við hvers kyns netsvikum og hvetjum ykkur öll til að vera vakandi og sýna aðgát í bæði símanum og tölvunni.
Vörumst netsvik saman.