Standard & Poor’s staðfestir lánshæfismat Arion banka, BBB+ með stöðugum horfum

Standard & Poor’s staðfestir lánshæfismat Arion banka, BBB+ með stöðugum horfum

Standard & Poor’s staðfestir lánshæfismat Arion banka, BBB+ með stöðugum horfum - mynd

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur staðfest langtíma lánshæfismat Arion banka, BBB+ með stöðugum horfum. Skammtíma lánshæfismat bankans er áfram A-2.

Í tilkynningu frá Standard & Poor´s kemur fram að íslenska fjármálakerfið sé stöðugt og að hagkerfið haldi áfram að vaxa en um leið dragi úr merkjum um ofhitnun í hagkerfinu. Að þeirra mati raskar þátttaka lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði samkeppnisumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja.

Four Icelandic Banks Affirmed On Supportive Economic Growth Outlooks Stable Jul-17-2018