01. október 2015
Tvöfaldir punktar um borð hjá Icelandair
Viðskiptavinir Arion banka sem greiða fyrir kaup um borð í flugvélum Icelandair með World Elite korti, Gull Vildarkorti eða Platinum Vildarkorti fá tvöfalda Vildarpunkta til áramóta.
Vildarpunkta er meðal annars hægt að nýta til kaupa á flugmiðum með Icelandair, sem hluta af greiðslu upp í Saga Club gjafabréf og til kaupa á vörum og mat um borð hjá Icelandair. Einnig er hægt að breyta Vildarpunktunum í gjafabréf hjá Amazon og flytja yfir til annarra flugfélaga.