Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2018

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2018

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2018 - mynd

Stöðugur undirliggjandi rekstur

Hagnaður samstæðu Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2018 nam 1,1 milljarði króna samanborið við 0,1 milljarðs króna tap á sama tímabili 2017. Arðsemi eigin fjár var 2,3% á þriðja ársfjórðungi samanborið við neikvæða arðsemi upp á 0,2% á sama tímabili árið 2017. Hagnaður samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins 2018 nam 6,2 milljörðum króna og arðsemi var 3,9% samanborið við 10,4 milljarða króna hagnað og 6,3% arðsemi á sama tímabili 2017. Niðurfærslur sem tengjast Primera hafa áhrif á afkomu fjórðungsins og fyrstu níu mánuðina 2018.

Heildareignir námu 1.219,5 milljörðum króna í lok september 2018 samanborið við 1.147,8 milljarða króna í árslok 2017 og eigið fé hluthafa bankans nam 199,3 milljörðum króna, samanborið við 225,6 milljarða króna í árslok 2017. Arion banki greiddi 10 milljarða króna í arð í lok september 2018. 

Eiginfjárhlutfall bankans var 21,7% í lok september en var 24,0% í árslok 2017. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 21,6% í lok september, samanborið við 23.6% í árslok 2017.

Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:

Helstu efnahags- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:

Varðandi ítarlegar fjárhagsupplýsingar vísast til árshlutareiknings samstæðu Arion banka fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2018, sem birtur er á heimasíðu bankans, www.arionbanki.is.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma þriðja ársfjórðungs var undir væntingum og hefur gjaldþrot Primera Air þar mest áhrif en bankinn þurfti að færa niður eignir vegna þess. Undirliggjandi rekstur bankans er hins vegar áfram sterkur. Við sjáum góðan vöxt á milli ára í bæði þóknanatekjum og tekjum af tryggingastarfsemi. Á sama tíma helst vaxtamunur stöðugur í umhverfi þar sem samkeppni er mikil. Ljóst er þó að bankinn mun á næstunni frekar horfa til arðsemi af lánasafni sínu og þá jafnvel á kostnað lánavaxtar.

Eiginfjárstaða bankans er sterk þrátt fyrir umtalsverðar arðgreiðslur og kaup á eigin bréfum á árinu en bankinn hefur greitt út rúma 33 milljarða á árinu 2018 vegna þessa. Síðast í september greiddi Arion banki út 10 milljarða í arð í takt við stefnu bankans um lækkun eiginfjár, en áfram er unnið markvisst að þeim fjárhagslegu markmiðum sem bankinn hefur kynnt t.a.m. varðandi eigið fé, kostnaðarhlutfall og arðsemi.

Arion banki leggur mikla áherslu á kostnaðaraðhald í sífellt flóknara rekstrarumhverfi. Að hafa góð tök á kostnaði mun skipta miklu máli varðandi framtíðararðsemi og hefur bankinn þegar sett af stað verkefni með það að markmiðið að draga úr rekstrarkostnaði. Við höfum náð góðum árangri á undanförnum árum við að aðlaga þjónustu bankans að breyttum þörfum viðskiptavina. Lögð hefur verið megináhersla á stafrænar lausnir með þróun Arion banka appsins, netbankans og annarrar þjónustu á vef bankans, sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að sinna sínum fjármálum á þægilegan máta. Einnig höfum við breytt og þróað áfram útibúanetið okkar. Þar leggjum við annars vegar áherslu á styrkingu kjarnaútibúa okkar, þar sem boðið er upp á víðtæka þjónustu og ráðgjöf, og hins vegar á endurhönnun minni útibúa sem hafa mörg hver verið flutt í þjónustukjarna þar sem viðskiptavinir okkar eiga gjarnan leið um. Nýjasta dæmið um þetta er útibú bankans í Hagkaup í Garðabæ. Með sameiningu útibúa og flutningi þeirra hefur náðst fram margvíslegt hagræði, m.a. hefur dregið verulega úr notuðum fermetrum.

Á undanförnum árum hefur verið rík áhersla á jafnréttismál innan bankans með góðum árangri. Arion banki varð nýverið fyrsti bankinn og jafnframt eitt stærsta fyrirtækið sem fengið hefur heimild til að nota Jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins. Arion banki innleiddi fyrst jafnlaunakerfi í starfsemi sína árið 2015 og fékk í kjölfarið Jafnlaunavottun VR. Jafnlaunakerfið er mikilvægt stjórntæki og stuðlar að því að starfsfólki, sem vinnur jafnverðmæt störf, sé ekki mismunað í launum. Við höfum einnig unnið að því að jafna kynjahlutföll í stjórnendahópi bankans. Nú þegar bankinn hefur verið skráður í kauphöllina í Stokkhólmi þá er ánægjulegt að sjá að við erum nokkuð framarlega á þessu sviði miðað við önnur félög í þeirri kauphöll. Á nýjum lista sem gefinn er út af AllBright, sem er sænsk stofnun sem hefur það meginmarkmið að stuðla að auknu jafnrétti í viðskiptalífinu, er Arion banki í 17. sæti af 329 fyrirtækjum, sem eru skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi, þegar kemur að jöfnum hlutföllum kynjanna í hópi stjórnenda. Við munum halda áfram á þessari braut með það að markmiði jafna enn frekar stöðu kynjanna innan bankans.

Kostnaðarhlutfall bankans þróaðist með jákvæðum hætti á fjórðungnum. Innan bankans fer fram markviss vinna við að straumlínulaga starfsemi bankans og hagræða. Sú stefnumiðaða vegferð sem bankinn er á varðandi stafræna þjónustu og þróun útibúanetsins er mikilvæg hvað þetta varðar þar sem hún mun til lengri tíma litið skila bæði kostnaðarhagræði og auknum tekjum. Bankinn horfir jafnframt til útvistunar verkefna og samstarfs við aðra þar sem samnýta má t.a.m. starfsfólk, aðföng og húsnæði.

Valitor heldur áfram að vaxa erlendis en fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum á Norðurlöndum og í Bretlandi fjölbreyttar lausnir á sviði greiðslumiðlunar. Stefnumótun varðandi framtíðareignarhald Valitor er lokið og vinnur bankinn að því að fá til liðs við sig alþjóðlegan fjárfestingarbanka til að aðstoða við sölu félagsins, að hluta eða í heild. Gera má ráð fyrir að ákvörðun um næstu skref verði kynnt á næstunni.“

Fundur með markaðsaðilum

Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila þann 1. nóvember klukkan 8:30 þar sem Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri, og Stefán Pétursson, fjármálastjóri, munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 og verður jafnframt streymt beint.

Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér. Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þannig þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland: 800 7417
Svíþjóð: +46 856 642 665
Bretland: +44 20 3008 9808

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Afkomutilkynning Arion banka 3F 2018
Árshlutareikningur Arion banka 3F 2018
Afkomukynning Arion banka 3F 2018