Konurnar í Arion banka styrkja kvennadeildir Landspítalans

Konurnar í Arion banka styrkja kvennadeildir Landspítalans

Rakel Óttarsdóttir afhendir Ingibjörgu Th. Hreiðarsdóttur styrk að fjárhæð 1,6 milljón / Mynd: OZZO Photography - mynd
Rakel Óttarsdóttir afhendir Ingibjörgu Th. Hreiðarsdóttur styrk að fjárhæð 1,6 milljón / Mynd: OZZO Photography
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography - mynd
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography
Elísabet Hilmarsdóttir, Eva Björk Björnsdóttir og Elísabet Árnadóttir / Mynd: OZZO Photography - mynd
Elísabet Hilmarsdóttir, Eva Björk Björnsdóttir og Elísabet Árnadóttir / Mynd: OZZO Photography
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography - mynd
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography
Hildur Markúsdóttir, Inga Rósa Sigurðardóttir, Guðrún Helga Hamar, Andrea Ósk Jónsdóttir og Petra Björk Mogensen / Mynd: OZZO Photography - mynd
Hildur Markúsdóttir, Inga Rósa Sigurðardóttir, Guðrún Helga Hamar, Andrea Ósk Jónsdóttir og Petra Björk Mogensen / Mynd: OZZO Photography
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography - mynd
Frá konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography
Ragna Björk Ragnarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir og Þóra Margrét Hjaltested / Mynd: OZZO Photography - mynd
Ragna Björk Ragnarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir og Þóra Margrét Hjaltested / Mynd: OZZO Photography
Frá tískusýningu á konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography - mynd
Frá tískusýningu á konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography
Iða Brá Benediktsdóttir á tískusýningu á konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography - mynd
Iða Brá Benediktsdóttir á tískusýningu á konukvöldi Arion banka / Mynd: OZZO Photography
Guðrún Helga Hamar, Hanna María Pálmadóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir / Mynd: OZZO Photography - mynd
Guðrún Helga Hamar, Hanna María Pálmadóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir / Mynd: OZZO Photography
Eva Björk Björnsdóttir og veislustjórar kvöldsins, Jón Jósep Snæbjörnsson og Hörður Bjarkason / Mynd: OZZO Photography - mynd
Eva Björk Björnsdóttir og veislustjórar kvöldsins, Jón Jósep Snæbjörnsson og Hörður Bjarkason / Mynd: OZZO Photography

Á dögunum tóku konurnar í Arion banka höndum saman og efndu til konukvölds með það að markmiði að safna fjármunum fyrir kvennadeildir Landspítalans.

Á dagskrá konukvöldsins var tískusýning, góðgerðarhappdrætti, söngur og tónlist en fjöldi fyrirtækja aðstoðaði við framkvæmd kvöldsins, m.a. með vinningum fyrir happdrættið. Alls safnaðist ein milljón og sexhundraðþúsund krónur sem renna óskiptar til kvennadeildanna.

Það var Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, sem afhenti Ingibjörgu Th. Hreiðarsdóttur, yfirljósmóður göngudeildar mæðraverndar og fósturgreiningar, styrkinn. Ingibjörg hafði sérstaklega á orði að kvennadeildirnar væru afar háðar frjálsum framlögum sem oftar en ekki kæmu frá konum og að á kvöldi sem þessu sæist því vel að konur væru í raun konum bestar.

Maríanna Finnbogadóttir, sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka, er ein þeirra sem skipulagði kvöldið:

„Þetta er annað konukvöldið sem við stöndum fyrir í Arion banka en það fyrsta var fyrir fjórum árum síðan. Allt frá þeim tíma höfum við rætt um að endurtaka leikinn enda er það frábær tilfinning að finna samtakamáttinn þegar svona hópur kemur saman til að leggja sitt af mörkum.

Langflest okkar eiga einhverja tengingu við kvennadeildir Landspítalans og stór hluti kvenna bankans hefur eða mun á einhverjum tímapunkti, nýta sér þjónustu deildanna. Við þurftum því ekki að hugsa okkur lengi um þegar kom að því að ákveða hvernig söfnunarfénu yrði varið.“