17. ágúst 2016
Menningarnótt í Arion banka
Í tilefni Menningarnætur verður opið í höfuðstöðvum Arion banka Borgartúni 19, laugardaginn 20. ágúst frá kl. 12.00-16.00.
Í höfuðstöðvum bankans stendur nú yfir sýning á völdum verkum hins kunna listamanns Kristins E. Hrafnssonar frá árinu 1988 til dagsins í dag auk þess sem hægt er að skoða ýmis verk úr safneign bankans. Íris Stefánsdóttir, listráðunautur bankans, verður á staðnum til að spjalla og svara spurningum um sýninguna og safneignina.
Næg frí bílastæði í göngufæri við miðbæinn.