Fjölbreyttari alþjóðlegir fjárfestingarkostir

Fjölbreyttari alþjóðlegir fjárfestingarkostir

Fjölbreyttari alþjóðlegir fjárfestingarkostir - mynd

Arion banki lauk á dögunum formlega kaupum á ráðgjafafyrirtækinu Arngrimsson Advisors og er þjónusta félagsins orðin hluti af þjónustuframboði bankans. Arngrimsson Advisors hefur sinnt eignastýringarráðgjöf með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar frá árinu 2013. Viðskiptavinir Arion munu þannig njóta góðs af þeim alþjóðlegu tengslum og þeirri viðamiklu reynslu á sviði fjárfestinga fyrir einstaklinga, lífeyrissjóði, tryggingafélög og fjárfestingarfélög sem félagið hefur byggt upp.

Í samstarfi við erlend fjármálafyrirtæki eins og JP Morgan Asset Management, Fidelity International og State Street Global Advisors hefur Arion banki boðið viðskiptavinum sínum að fjárfesta í fjölbreyttum alþjóðlegum sjóðum. En nú fjölgar þeim valkostum sem viðskiptavinum stendur til boða, sérstaklega þegar kemur að fjárfestingum í erlendum sérhæfðum sjóðum, meðal annars í stýringu hjá Carlyle, AlpInvest, LCN og J.Saffra Sarasin, sem margir hverjir eiga sér langa og farsæla sögu meðal fagfjárfesta hér á landi.

Arngrimsson Advisors var stofnað í London í janúar 2013 af Sigurði Arngrímssyni sem starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Morgan Stanley í 16 ár og þar áður hjá Kaupþingi. Bjarni Brynjólfsson, forstjóri félagsins, gekk til liðs við fyrirtækið síðar á árinu 2013 eftir að hafa byggt upp viðamikla reynslu á sviði fjárfestinga fyrir lífeyrissjóði, tryggingafélög og fjárfestingarfélög.

Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var þegar formlega var gengið frá kaupum Arion banka á Arngrimsson Advisors, eru f.v. Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða Arion banka, Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður sölu og þjónustu fagfjárfesta hjá Arion banka, Sigurður Arngrímsson, stjórnarformaður Arngrimsson Advisors, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Bjarni Brynjólfsson, forstjóri Arngrimsson Advisors.