Arion banki er aðalbakhjarl Fasteignaráðstefnunnar 2016

Arion banki er aðalbakhjarl Fasteignaráðstefnunnar 2016

Arion banki er aðalbakhjarl Fasteignaráðstefnunnar 2016, sem haldin verður í fyrsta sinn fimmtudaginn 25. febrúar í Hörpu.

Markmið ráðstefnunnar er að safna saman lykilaðilum markaðarins til að fara yfir stöðu hans, samþætta upplýsingar, fara yfir markmið, kosti og galla, framtíðarsýn og ekki síst að tengja aðila markaðarins saman. 

Dagskráin er fjölbreytt en meðal fyrirlesara verður Konráð S. Guðjónsson, sérfræðingur í greiningardeild bankans með erindið Er hóteluppbygging að halda aftur af íbúðabyggingum?

Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar má finna hér