Jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?

Jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?

Jafnar greiðslur eða jafnar afborganir? - mynd

Það er ekki skrítið að eiga í vandræðum með að skilja muninn á þessu tvennu, sérstaklega þar sem hugtökin greiðsla og afborgun á láni eru oft notuð um sama hlutinn, mánaðarlegu upphæðina sem greidd er af láni. En þessi tvö hugtök, jafnar greiðslur og jafnar afborganir, eiga við um þær tvær greiðsluleiðir sem eru í boði á húsnæðisláni. Leiðirnar tvær eru ólíkar og greiðslubyrðin er mjög mismunandi fyrir hvora leið fyrir sig.

Jafnar greiðslur

Þegar valið er að hafa greiðslur jafnar eru þær, eins og nafnið gefur til kynna, jafnaðar út og sú upphæð sem greidd er í hverjum mánuði er sú sama. Upphæðin breytist hins vegar ef vextir lánsins breytast eða ef breytingar verða á vísitölu neysluverðs, ef lán er verðtryggt. Til þess að hægt sé að jafna út greiðslurnar er hlutfall vaxtakostnaðar mun hærra í greiðslum á fyrri hluta lánstíma lánsins en hlutfall greiðslna af höfuðstól lægri. Eftir því sem líður á lánstímann hækkar hlutfall hverrar greiðslu sem fer til lækkunar á höfuðstól. Þetta greiðslufyrirkomulag veldur því að eignarmyndunin er hæg framan af lánstímanum.

Jafnar afborganir

Það er sjaldgæfara að fólk velji jafnar afborganir en þó eru sumir sem kjósa þessa leið til þess að greiða af láninu sínu. Þegar jafnar afborganir eru valdar er alltaf sama upphæðin greidd inn á höfuðstól lánsins. Hafa skal í huga að ef lánið er verðtryggt þá breytist þessi upphæð í takt við þróun verðbólgu, og vaxtagreiðslan leggst svo ofan á þá upphæð. Afborganirnar fara því lækkandi þegar líður á lánstímann þar sem höfuðstóllinn lækkar og mánaðarlega vaxtagreiðslan lækkar með lækkandi höfuðstól.

 

Fleiri greinar