Viðhald á kortatengdri þjónustu um helgina

Viðhald á kortatengdri þjónustu um helgina

Viðhald á kortatengdri þjónustu um helgina - mynd

Nú um helgina fer fram viðhald á kortatengdri þjónustu Arion banka.

Fyrri viðhaldsaðgerðin fer fram milli kl. 06:00-11:00 sunnudaginn 7. september. Á þeim tíma kann að verða einhver truflun á þjónustu bankans en hún ætti þó ekki að liggja niðri.

Seinni viðhaldsaðgerðin fer fram milli kl. 04:45-05:30 mánudaginn 8. september. Áætluð áhrif og niðritími frá viðhaldinu eru á milli 05:10 og 05:15. Á þeim tíma verða kortaaðgerðir í appi og netbanka óvirkar.

Greiðslur með kortum munu virka eðlilega.