Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðallinn

Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðallinn

Einar Gunnar Guðmundsson, Arion banka, tekur við verðlaunum úr hendi Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups - mynd
Einar Gunnar Guðmundsson, Arion banka, tekur við verðlaunum úr hendi Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups
Allir íslensku verðlaunahafarnir - mynd
Allir íslensku verðlaunahafarnir

Startup Reykjavík, viðskiptahraðall Arion banka, var í gær valinn besti viðskiptahraðallinn á Íslandi.

Úrslitin í Nordic Startup Awards á Íslandi voru kynnt í Háskólanum í Reykjavík í gær og tók Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Arion banka í nýsköpun, við verðlaununum. Arion banki er afar stoltur eigandi Startup Reykjavík og óskum við samstarfsaðilum okkar í Icelandic Startups til hamingju með árangurinn.

Úrslit allra Norðurlandanna verða svo tilkynnt á lokahófi Nordic Startup Awards, sem að þessu sinni verður haldið í Reykjavík þann 31. maí í Hörpu.

Íslensku verðlaunahafarnir voru eftirfarandi:

  • Startup Media of the Year: Norðurskautið
  • Best Investment Company: Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
  • Best Business Angel: Kjartan Olafsson
  • Best Office Space: Íslenski Sjávarklasinn
  • Best Accelerator Program: Startup Reykjavik
  • Best Social Tech Startup: Karolina Fund
  • Best IoT Startup: Medilync
  • Best Exponential Startup: Guide to Iceland
  • Best Bootstrapped: GeoSilica Iceland
  • CTO Hero of The Year: Ragnar Fjölnisson
  • Newcomer of the Year: Sling
  • People's Choice: Medilync
  • Founder of the Year: Fida Abu Libdeh
  • Startup of the Year: Mint Solutions