Arion banki breytir vöxtum

Mánudaginn 10. febrúar taka eftirfarandi breytingar á inn- og útlánsvöxtum Arion gildi:
Íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 9,64%
Kjörvextir
- Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 10,85%
Bílalán
- Kjörvextir bílalána lækka um 0,50 prósentustig og verða 11,25%
Yfirdráttavextir
- Yfirdráttavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 15,75%
Kreditkort
- Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta lækka um 0,50 prósentustig og verða 15,75%
Innlán
- Vextir veltureikninga lækka um allt að 0,50 prósentustig
- Vextir annarra óverðtryggðra sparireikninga lækka um allt að 0,50 prósentustig
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.
Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.