Arion banki á norðurslóðum
Arion banki er reyndur samstarfsaðili í sjávarútvegi og hefur um árabil átt í góðu samstarfi við öflug sjávarútvegsfyrirtæki hér á landi. Í dag horfum við til þess að nýta okkar reynslu og vera virkur þátttakandi í þeirri uppbyggingu sem framundan er á norðurslóðum. Bankinn býr yfir djúpri þekkingu á sjávarútvegi og fiskeldi sem og fleiri greinum og okkar reynslumikla starfsfólk býr jafnframt yfir mikilli þekkingu á fjármálafurðum auk góðra tengsla við erlenda fjármálamarkaði.
Þannig horfum við til þess að sinna þeim atvinnuvegum á norðurslóðum sem við þekkjum best og styðja við verkefni þar sem sérþekking okkar kemur að notum. Líklegt er að ýmis íslensk fyrirtæki muni jafnframt koma að þeirri uppbyggingu.
Starfsfólki Arion banka hefur gengið vel að fóta sig á nýjum slóðum. Útlán bankans á norðurslóðum jukust um 87 prósent yfir tólf mánaða tímabil, samkvæmt uppgjöri Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2022. Arion banki kemur að verkefnum í Færeyjum, Grænlandi, Kanada og Noregi og með auknum umsvifum á norðurslóðum eykst fjölbreytileiki lánasafns Arion banka á svæði sem mun vaxa umtalsvert í efnahagslegu tilliti á næstu árum. Á meðal áhugaverðra tækifæra á norðurslóðum má nefna fiskeldi, en sú atvinnugrein hefur t.a.m. verið í mikilli sókn í Færeyjum. Þessi vöxtur hefur m.a. leitt af sér að landsframleiðsla á hvern íbúa þar í landi er nú hærri en í Danmörku.
Arion banki hefur stutt dyggilega við uppbyggingu fiskeldis hér á landi. Bankinn hefur gegnt lykilhlutverki við öflun fjármagns fyrir fiskeldi svo sem með sölu á hlutafé og lánveitingum. Það er eflaust ekki langt í að fiskeldi verði ein verðmætasta útflutningsgrein Íslands. Þó fiskeldi sé ekki óumdeild atvinnugrein þá er óhætt að segja að uppbygging fiskeldis hérlendis hafi gert það að verkum að byggðir sem áttu undir högg að sækja hafa byggst upp af myndarskap og eru þar nú fjölbreytt atvinnutækifæri. Þekkt er að erlendis hefur uppbygging laxeldis gert menntuðu fólki sem ólst upp á landsbyggðinni kleift að snúa aftur í heimabyggð. Áður en atvinnugreinin sleit barnsskónum voru starfstækifæri þar fyrir menntaða oft af skornum skammti en það er nú breytt. Fiskeldi hefur einnig fleiri jákvæða þætti í för með sér og má þar nefna að kolefnisspor þess er minna en gengur og gerist við framleiðslu á dýrapróteini. Auk þess er nýting á fóðri í fiskeldi ein sú besta sem um getur.
Við teljum að það sé rökrétt fyrir Arion banka, sem og mörg önnur fyrirtæki á Íslandi, að horfa til norðurslóða þegar kemur að því að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp hér á landi. Ísland á margt sameiginlegt með öðrum þjóðum sem tilheyra svæðinu. Ísland er til að mynda strjálbýlt eins og hin löndin á svæðinu, veðurfar er svipað og fiskveiðar skipta efnahagslíf svæðisins miklu. Innan Arion banka hefur byggst upp mikil reynsla og þekking í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar sem við teljum að geti nýst vel við uppbyggingu á norðurslóðum. Að okkar mati eru því íslensk fyrirtæki í kjörstöðu til að veita ráðgjöf og þjónustu til uppbyggingar á norðurslóðum.
Grein eftir Rúnar Magna Jónsson, forstöðumann á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði.
Greinin birtist fyrst í blaði Fiskifrétta sem kom út í júní 2022 í tilefni sjávarútvegssýningar.