Magnús Már ráðinn forstöðumaður Arion Premíu

Magnús Már ráðinn forstöðumaður Arion Premíu

Magnús Már Leifsson - myndMagnús Már Leifsson

Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka.

Magnús Már mun leiða nýtt Premíu teymi bankans sem sérhæfir sig í þjónustu sem er sérsniðin að þörfum þeirra sem eru í umfangsmiklum viðskiptum við Arion. Þjónustan felur m.a. í sér greiðan aðgang að sérfræðingum, hagstæð kjör og margvísleg fríðindi. Undir Premíu þjónustuna fellur m.a. einkabankaþjónusta og fjárstýring, sem er í boði fyrir umsvifamestu viðskiptavini bankans.

„Reynsla Magnúsar mun efla enn frekar hið frábæra Premíu teymi okkar,“ segir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka. „Víðtæk reynsla hans úr fjármálaheiminum mun nýtast vel við að leiða þessa þjónustu og ég er hæstánægður með að fá hann í þetta nýja hlutverk.“

Magnús Már, sem hóf störf í einkabankaþjónustu hjá Arion banka fyrr á árinu, er lögmaður að mennt. Áður en hann gekk til liðs við Arion banka starfaði hann í einkabankaþjónustu Kviku eignastýringar og þar áður sem yfirlögmaður félagsins og sem lögmaður hjá Kviku banka. Í framangreindum störfum vann Magnús náið með stjórnum og undirnefndum félaganna. Þá hefur Magnús Már reynslu af margvíslegum störfum tengdum íslenskum sjávarútvegi en hann stundaði sjómennsku um árabil auk þess að starfa við fiskvinnslu.