Arion banki með mestu hlutabréfaveltuna í janúar
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Arion banki hf. var með mestu hlutdeildina á hlutabréfamarkaði í janúarmánuði. Bankinn velti rúmum 34 milljörðum króna á hlutabréfamarkaði sem samsvarar 24% hlutdeild. Arion banki hefur verið stærstur á hlutabréfamarkaði undanfarin fjögur ár en veltan í janúar er mesta velta bankans á einum mánuði síðan vorið 2017.
Velta með hlutabréf á aðalmarkaði Nasdaq Iceland nam 142,5 ma.kr. í janúar en mesta veltan var að venju með Marel eða 17,4% af heildarveltunni. Arion banki átti mestu veltuna með Marel eða rúmlega fjórðung. Auk þess átti Arion banki mestu veltuna með Festi, Haga, TM, VÍS, Sjóvá, Símann og Icelandic Seafood.
